LPGA | þriðjudagur 12. júlí 2011 | 08:56

Ryu fangaði sigri í Opna bandríska


Ryu So-yeon frá Suður-Kóreu vann sitt fyrsta stórmót í gær þegar hún fagnaði sigri á Opna bandaríska meistaramóti kvenna. Hún hafði betur gegn löndu sinni Seo Hee-kyung í þriggja holu umspili en leika varð lokahringinn í gær eftir að veður hafði tafið keppnishald.

Þær léku samtals á þremur höggum undir pari en leikið var á hinum erfiða Broadmoor golfvelli í Colorado-fylki. Aldrei áður hefur verið leikið á eins löngum golfvelli í Opna bandaríska mótinu og sást það kannski á skori kylfinga. Aðeins þrír kylfingar léku undir pari í mótinu og varð Christie Kerr frá Bandaríkjunum í þriðja sæti á einu höggi undir pari.

Besti kvenkylfingur heims, Yani Tseng frá Taívan, varð í 15. sæti á sex höggum yfir pari og Michelle Wie frá Bandaríkjunum varð í 55. sæti á samtals 15 höggum yfir pari. Fyrir sigurinn hlaut Ryu So-yeon um 63 milljónir króna í sinn hlut.

Lokastaðan í mótinu