LPGA | sunnudagur 10. júlí 2011 | 15:00
Wie komst naumlega í gegnum niðurskurðinn á Opna bandaríska
Veður hefur verið til vandræða fyrir kvenkylfinga í Opna bandaríska stórmótinu sem fram fer um helgina. Stefnt er að því að leika 36 holur í dag til að reyna að ljúka leik á réttum tíma. Hin japanska Mika Miyazato hefur forystu eftir tvo hringi en hún lék fyrstu 36 holurnar á fimm höggum undir pari.
Michelle Wie frá Bandaríkjunum fékk fugl á lokaholu sinni á öðrum hring sem kom henni í gegnum niðurskurðinn. Hún lék fyrstu tvo hringina á samtals sjö höggum yfir pari og hefur ekki fundið sig á erfiðum Broadmoor vellinum.
Yani Tseng frá Taívan, besti kvenkylfingur heims, er í baráttunni um sigurinn en hún var á fjórum höggum yfir pari eftir 36 holur. Hún hefur hins vegar farið vel af stað á þriðja hring.
Hér má fylgjast með stöðunni í mótinu