LPGA | mánudagur 27. júní 2011 | 07:36

Tseng langbest hjá konunum – Vann með tíu höggum


Yani Tseng er án nokkurs vafa besti kvenkylfingur heims og sigraði á LPGA Championship stórmótinu með tíu högga mun. Tseng, sem er aðeins 22ja ára gömul, er yngsti kvenkylfingurinn til að hafa sigrað fjögur risamót hjá konunum. Hún lék samtals á 19 höggum undir pari sem er lægsta sigurskor í mótinu frá upphafi og var í algjörum sérflokki í mótinu.

Fyrir sigurinn hlaut Tseng um 43 milljónir króna í sinn hlut en þetta var hennar þriðji sigur á LPGA-mótaröðinni í ár. Alls hefur hún unnið sex mót í ár og virðist enginn standa henni snúning á mótaröðinni.

Það segir nokkuð um framgöngu Tseng að Annika Sörenstam var 24 ára þegar hún vann sitt fyrsta risamót og Tiger Woods var einnig á sama aldri. Þá má jafnvel búast við því að Tseng verði allsráðandi á mótaröðinni næstu árin og sló einnig Rory McIlroy við með sigri sínum í gær. McIlroy vann Opna bandaríska meistaramótið með átta högga mun en Tseng var tíu höggum á undan Morgan Pressel frá Bandaríkjunum í mótinu um helgina.

Suzann Pettersen frá Noregi varð í þriðja sæti á samtals átta höggum undir pari ásamt Christie Kerr og Paulu Creamer. Tseng fær tækifæri til að bæta fimmta risatitli sínum við eftir tvær vikur þegar Opna bandaríska kvennamótið fer fram. Það er eina risamótið sem Tseng hefur ekki unnið og mun hún væntanlega leggja allt í sölurnar fyrir sigri.

Lokastaðan í mótinu