Hleð inn spilara...
LPGA | þriðjudagur 14. júní 2011 | 13:18
Frábært gengi Tseng heldur áfram
Yani Tseng frá Taívan heldur áfram að leika vel og sigraði um helgina í State Farm Classic mótinu á LPGA-mótaröðinni. Hún varð þremur höggum á undan Christie Kerr sem átti titil að verja í mótinu.
Tseng lék samtals á 21 höggi undir pari í mótinu eftir að hafa leikið sérlega gott golf um helgina. Allir hringir hennar voru undir 70 höggum og styrkti hún stöðu sína í efsta sæti heimslistans með sigrinum. Fyrir sigurinn fékk Tseng um 29 milljónir króna í sinn hlut.
Þekkt nöfn röðuðu sér í efstu sætin í mótinu því Paula Creamer og Brittany Lincicome urðu jafnar í þriðja sæti á 16 höggum undir pari. Michelle Wie og Suzann Pettersen urðu að láta sér lynda 12. sætið á tólf höggum undir pari. Natalie Gulbis varð svo í 15. sæti. Í myndbandinu hér að ofan má sjá samantekt frá lokahringnum.
Lokastaðan í mótinu
