LPGA | mánudagur 23. maí 2011 | 10:49

Sigur hjá Pettersen eftir tuttugu mánaða bið


Hin norska Suzann Pettersen hafði betur gegn Cristie Kerr í úrslitum á Sybase Match Play Championship mótinu sem lauk í gær á LPGA-mótaröðinni. Lokaúrslit urðu 1/0 fyrir Pettersen eftir jafnan og spennandi úrslitaleik.

Þetta er fyrsti sigur Pettersen í um tuttugu mánuði. Hún varð sex sinnum í öðru sæti á síðasta ári og náði því loksins að enda mót með sigri. Fyrir sigurinn fékk Pettersen um 43 milljónir króna í sinn hlut.

Pettersen lagði marga sterka kylfinga í leið sinni að sigrinum líkt og Na Yeon Choi, Stacy Lewis, Yani Tseng og Natalie Gulbis. Choi varð í þriðja sæti eftir að hafa lagt Angelu Stanford í leik um bronsið, 4&3. Michelle Wie féll úr keppni í 16-manna úrslitum eftir tap fyrir Sophie Gustafson frá Svíþjóð.

Hér má sjá lokaúrslitin í mótinu