LPGA | mánudagur 2. maí 2011 | 11:11

Hjörth sigraði í fimmta sinn - Gullið tækifæri fór forgörðum hjá Thompson


Hin sænska Maria Hjörth sigraði á Avnet LPGA Classic mótinu sem lauk í gær á LPGA-mótaröðinni í Alabama-fylki, Bandaríkjunum. Hún lék samtals á tíu höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Þetta er fimmti sigurinn hjá hinni 37 ára gömlu Hjörth á LPGA-mótaröðinni.

Hin 16 ára gamla Alexis Thompson frá Bandaríkjunum varð af tækifærinu á að verða yngsti sigurvegarinn á mótaröðinni frá upphafi. Hún leiddi mótið fyrir lokahringinn en varð pressunni að bráð í gær. Hún lék á 78 höggum og varð að lokum í 19. sæti í mótinu.

Song-Hee Kim frá Suður-Kóreu varð önnur í mótinu á átta höggum undir pari og þær Na Yeon Choi og Suzann Pettersen deildu þriðja sætinu höggi þar á eftir.

Lokastaðan í mótinu