LPGA | sunnudagur 1. maí 2011 | 10:06
Verður Thompson yngsti sigurvegarinn frá upphafi?
Hin 16 ára gamla Alexis Thompson er efst fyrir lokahringinn í Avnet LPGA Classic mótinu sem fram fer í Alabama á LPGA-mótaröðinni. Thompson deilir forystunni ásamt Song-hee Kim á samtals sjö höggum undir pari. Fari Thompson með sigur af hólmi í mótinu verður hún yngsti sigurvegarinn í 61 árs sögu mótaraðarinnar.
Thompson lék þriðja hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Baráttan um sigurinn í mótinu verður þó án efa hörð. Amy Yang er í þriðja sæti á sex höggum undir pari. Maria Hjörth frá Svíþjóð, Suzann Pettersen frá Noregi og Karen Stupples frá Englandi eru allar á fimm höggum undir pari og því vel í baráttunni um sigurinn.
Hin þýska Sandra Gal var í forystunni eftir annan hring en fataðist flugið í gær þegar hún lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari. Michelle Wie mistókst að komast í gegnum niðurskurðinn eftir að hafa leikið fyrstu tvo hringina samtals á fjórum höggum yfir pari.
Staðan í mótinu