LPGA | föstudagur 29. apríl 2011 | 07:51
Ochoa á von á sínu fyrsta barni
Lorena Ochoa, fyrrum besti kvenkylfingur heims, tilkynnti í gær að hún og eiginmaður hennar, Andres Conesa, eigi von á þeirra fyrsta barni. Ochoa, sem kemur frá Mexíkó, hætti þátttöku í keppnisgolfinu á hátindi ferilsins og var þá enn sú efsta á heimslista kvenna.
Sú ákvörðun kom golfheiminum nokkuð á óvart á sínum tíma en hugur Ochoa lá annað því hún hafði hug á því að stofna fjölskyldu sem nú er komið vel á veg.
Ochoa verður þrítug í ár og vann alls 27 mót á LPGA-mótaröðinni. Að auki vann hún tvívegis í risamóti og er líklega besti kylfingurinn sem Mexíkó hefur getið af sér.