LPGA | þriðjudagur 26. apríl 2011 | 14:01
Lydia Ko skráði sig í sögubækurnar í Nýja-Sjálandi
Hinn unga og geysilega efnilega Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi sigraði um helgina á Opna Ný-sjálenska mótinu sem fram fór um helgina á Russley golfvellinum. Hún lagði Cecilia Cho 4/3 í úrslitaleiknum og varð um leið yngsti sigurvegarinn í 117 ára sögu mótsins.
Ko er ný orðin 14 ára gömul og til samanburðar þá sigraði hinn 24 ára gamli Mathew Perry í karlaflokki. Ko hefur verið lýst sem einni efnilegustu golfkonu heims um þessar mundir en hún hefur nú þegar náð ágætum árangri í þeim mótum á Evrópumótaröð kvenna sem hún tók þátt í fyrr á þessu ári.
Framtíðin virðist vera afar björt hjá Ko en þó má ekki gleyma því að pressan á henni mun væntanlega vera mikil á næstu árum. Vonandi verður hún ekki pressunni að bráð líkt og Michelle Wie varð en hún hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar á sínum tíma.
...
Sjá einnig:
GolfTV: Heimurinn fylgist með hinni 13 ára Ko