LPGA | miðvikudagur 20. apríl 2011 | 18:31

Pressel ætlar að gefa helminginn af verðlaunafé til hjálparstarfs í Japan


Bandaríski kylfingurinn Morgan Pressel mun leika í Japan í næsta mánuði þegar hún reynir að verja titil sinn á World Ladies Championship Salonpas Cup mótinu. Þetta er fyrsta stóra mótið í japanska kvennagolfinu eftir þær náttúruhamfarir sem urðu í landinu í síðasta mánuði við mjög stóran jarðskjálfta og flóðbylgju sem reið í kjölfarið.

Pressel ætlar að reyna að láta gott af sér leiða í mótinu og hefur heitið því að láta helminginn af því verðlaunafé sem hún vinnur sér inn í mótinu renna til hjálparstarfs í Japan.

Pressel vann Kraft Nabisco risamótið árið 2007 og er þekkt fyrir góðgerðarmál. Hún safnaði hálfri milljón dollara á síðasta ári til rannsókna og fræðslu á brjóstakrabbameini. Það verður spennandi að sjá hvernig henni gengur í mótinu.