LPGA | föstudagur 15. apríl 2011 | 15:14
Svíar í forystu á European Nations Cup
Sophie Gustafson og Anna Nordqvist eiga góðan möguleika að verja titil Svía í European Nations Cup sem fram fer á La Sella vellinum á Alicante, Spáni. Sænska liðið er samtals á þrettán höggum undir pari eftir að hafa leikið annan hringinn á 63 höggum eða níu höggum undir pari.
Spænska liðið er í öðru sæti aðeins höggi á eftir og Wales er í þriðja sæti á tíu höggum undir pari. Athygli verkur að bandaríska liðið er aðeins í 15. sæti þegar mótið er hálfnað á einu höggi undir pari þrátt fyrir að þær Brittany Lincicome og Christina Kim leiki fyrir hönd liðsins. Þær eru í flokki bestu kylfinga heims og því hefur árangur Bandaríkjanna til þessa valdið vonbrigðum.
Margir sterkir kylfingar leika í motinu og má nefna að fyrir England leika þær Melissa Reid og hin sigursæla Laura Davies. England er í 7. sæti á sjö höggum undir.
Staðan í mótinu
Myndir/golfsupport.nl: Á efri myndinni má sjá Önnu Nordqvist en Sophie Gustafson á þeirri neðri.