LPGA | mánudagur 4. apríl 2011 | 12:06
Lewis fangaði sínum fyrsta risasigri í gær
Bandaríski kylfingurinn Stacy Lewis fagnaði sigri á fyrsta risamóti kvenna, Kraft Nabisco Championship mótinu, sem fór fram í Kaliforníu um helgina. Þessi 26 ára kylfingur lék samtals á 275 höggum eða 13 höggum undir pari og varð þremur höggum á undan Yani Tseng frá Taívan sem varð önnur.
Lokahringurinn var leikinn við vindasamar aðstæður og léku fáir kylfingar undir pari í gær. Lewis lék hins vegar á 69 höggum eða þremur höggum undir pari og fangaði í kjölfarið sínum stærsta sigri á ferlinum.
„Þetta er ótrúlegt. Ég hélt ég myndi æla af stressi í allan dag en þetta er magnað. Ég lék frábærlega á lokahringnum og hef ekki slegið betur alla vikuna. Þetta var erfiður vindur en ég náði að halda mér í baráttunni og setti niður lykilpútt,“ sagði Lewis þegar sigurinn var í höfn.
Bandarísku kylfingarnir Katie Futcher, Angela Stanford og Morgan Pressel urðu jafnar í þriðja sæti á samtals fjórum höggum undir pari og Michelle Wie varð í sjötta sæti í mótinu.
Lokastaðan í mótinu
