LPGA | sunnudagur 3. apríl 2011 | 12:39
Nær Tseng að verja titilinn í kvöld?
Besti kvenkylfingur heims, Yani Tseng frá Taívan, er efst fyrir lokahringinn á Kraft Nabisco Championship mótinu sem fram fer á Mission Hills vellinum í Kaliforníu. Þessi 22ja ára kylfingur lék þriðja hringinn á 66 höggum og er þar með kominn á samtals 12 högg undir par í mótinu.
Tseng er tveimur höggum á undan Stacy Lewis fyrir lokahringinn sem lék á 71 höggi í gær. Morgan Pressel er samtals á átta höggum undir pari og Michelle Wie er á sex höggum undir pari fyrir lokahringinn.
Tseng á titil að verja í mótinu en hún vann þetta mót á síðasta ári. Hún lék frábært golf á síðustu leiktíð og hefur haldið áfram þar sem frá var horfið í ár.
Staðan í mótinu
