LPGA | laugardagur 2. apríl 2011 | 12:11

Stacy leiðir – Wie sló niður unga stúlku


Bandaríski kylfingurinn Stacey Lewis er efst þegar fyrsta risamót ársins hjá konunum er hálfnað, Kraft Nabisco Championship mótið sem fer fram á Mission Hills vellinum. Lewis er samtals á níu höggum undir pari og hefur þriggja högga forystu á Yani Tseng, Brittany Lincicome og Jane Park.

Michelle Wie lék best allra á öðrum hring og kom í hús á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Hún skýst þar með upp í 8. sæti í mótinu og gæti náð að blanda sér í baráttuna um sinn fyrsta risatitil á ferlinum.

Hringurinn hjá Wie gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig því slæmt teighögg hafnaði í ungri stúlku sem þurfti læknisaðstoð í kjölfarið. „Mér hefur aldrei liðið jafn illa eftir golfhögg. Ég hélt ég hefði slegið í vatnsúðara eða tré. Að slá í litla stúlku var það síðasta sem mér datt í hug og ég vona að það sé í lagi með hana,“ sagði Wie.

Staðan í mótinu