leirutilboð
Bookmark and Share

Fréttir | þriðjudagur 16. júní 2009 | 13:23

Wie komst ekki á Opna bandaríska


Michelle Wie mistókst í morgun að tryggja sér þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramóti kvenna eftir að hún lék á 74 höggum í dag. Hún tók þátt í úrtökumóti fyrir risamótið en varð einu höggi frá því að tryggja sér þátttökurétt. Það verður fyrsta risamótið sem Wie missir af á þessu ári en hún hefur nú þegar leikið á tveimur risamótum.

Hún hefur leikið á hverju ári á Opna bandaríska frá því að hún var 13 ára gömul. Hún tryggði sér þátttökurétt í mótinu í fyrra með því að fara í úrtökumót en komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Natalie Gulbis var ein þeirra sem einnig náði ekki að tryggja sér þátttökurétt í mótinu eftir úrtökumótið í dag.

Mynd/golfsupport.nl: Michelle Wie var einu höggi frá því að tryggja sér þátttökurétt á þriðja risamóti ársins á LPGA-mótaröðinni.