Evrópumótaröð kvenna | sunnudagur 3. júlí 2011 | 13:11

Hedwall sigraði í annað sinn í Finnlandi


Caroline Hedwall frá Svíþjóð fagnaði í gær sigri á Finnair Masters mótinu sem fram fór í Helsinki. Hún lék hringina þrjá í mótinu á samtals 11 höggum undir pari og varð tveimur höggum á undan Christel Boeljon frá Hollandi.

Ég er að leika vel. Þetta var góður dagur og skemmtilegt að spila. Ég lék frábært golf á föstudag og það var lykilinn að sigrinum. Ég ætla að halda áfram á þessari braut og vonandi vinn ég fleiri mót,“ sagði Hedwall eftir sigurinn.

Hin 22 ára gamla Hedwall vann þar með sitt annað mót á Evrópumótaröð kvenna á fimm vikum. Hún er að leika á sínu fyrsta tímabili á mótaröðinni og er með sigrinum um helgina kominn upp í þriðja sæti tekjulistans á mótaröðinni. Hún var liðsfélagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur úr GO hjá Oklahoma State háskólanum er hún var þar við nám.

Lokastaðan í mótinu