Hleð inn spilara...
Evrópumótaröð kvenna | mánudagur 27. júní 2011 | 13:16
Stelpurnar svara fyrir sig – Gera líka tónlistarmyndband
Stelpurnar á evrópsku kvennamótaröðinni hafa gefið út sína útgáfu af laginu ‚Oh Oh Oh‘ sem bandaríski kylfingurinn Ben Crane gaf út fyrir skömmu ásamt þeim Rickie Fowler, Bubba Watson og Hunter Mahan. Þeir kalla sig Golf Boys en stelpurnar taka svipaðan pól í hæðina og kalla sig Golf Girls.
Sophie Giquel, Sophie Sandolo, Jade Schaeffer og Cassandra Kirkland heita stúlkurnar á evrópsku kvennamótaröðinni sem hafa ákveðið að stæla kollega sína af PGA-mótaröðinni. Í nýju útgáfunni heitir lagið þó ‚Ah Ah Ah‘.
Það verður þó að segjast að líklega ættu báðir hópar einfaldlega að einbeita sér að golfinu.
