Evrópumótaröð kvenna | sunnudagur 17. apríl 2011 | 16:01
Svíþjóð varði titilinn á Spáni
Svíþjóð fagnaði sigri á European Nations Cup mótinu sem lauk í dag á La Sella vellinum á Alicante, Spáni. Þær Anna Nordqvist og Sophie Gustafson léku fyrir hönd Svíþjóðar í mótinu sem er fyrsta þjóðin til að verja titilinn í mótinu. Þær léku samtals á 21 höggi undir pari og urðu þremur höggum á undan Englandi og Þýskalandi.
„Þetta er frábært og það er varla hægt að vera hamingjusamari en ég er núna. Við skemmtum okkur sem lið og það var spennandi að ná að leika svo vel,“ sagði Nordqvist þegar sigurinn var í höfn.
Alls tóku 18 lið þátt í mótinu, aðallega frá Evrópu en Ástralía og Bandaríkin tóku einnig þátt í mótinu. Ástralska liðið var í forystu eftir fyrsta hring en urðu að sætta sig við 5. sætið á 16 höggum undir pari. Bandaríska liðið varð í 7. sæti eftir ágætan endasprett í mótinu.
Lokastaðan í mótinu
