Evrópumótaröð kvenna | laugardagur 16. apríl 2011 | 20:18
Svíþjóð í kjörstöðu á verja titilinn
Svíþjóð er í góðri stöðu fyrir lokahringinn á European Nations Cup mótinu sem fram fer á Alicante, Spáni. Sænsku stúlkurnar Sophie Gustafson og Anna Nordqvist eru samtals á 17 höggum undir pari og hafa þriggja högga forystu fyrir lokahringinn á lið Spánar.
Velska liðið er í þriðja sæti á 13 höggum undir pari og höggi þar á eftir kemur England. Besta hring dagsins átti bandaríska liðið sem lék á 64 höggum í dag. Það eru þær Brittany Lincicome og Christina Kim sem leika fyrir
Bandaríkin en frammistaða þeirra í mótinu á fyrstu tveimur hringjunum í mótinu olli nokkrum vonbrigðum.
Bandaríska liðið náði að lyfta sér upp í 8. sæti í mótinu og mun harla berjast um sigurinn í mótinu. Svíþjóð er með pálmann í höndunum á að verja titilinn í mótinu.
Staðan í mótinu