Hleð inn spilara...
Evrópumótaröð kvenna | þriðjudagur 15. febrúar 2011 | 15:42
GolfTV: Heimurinn fylgist með hinni 13 ára Ko
Kylfingurinn Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi er án efa einn efnilegasti kvenkylfingurinn í heiminum í dag. Hún er aðeins 13 ára gömul og hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu að undanförnu.
Hún varð öðru sæti á New South Wales Open og í 12. sæti í Australian Open mótinu fyrir skömmu á Evrópumótaröð kvenna og verður meðal keppenda þegar leikið verður í hennar heimalandi í Pegasus New Zealand Open mótinu um helgina.
Ko er nú þegar kominn í 250. sæti á heimslistanum þrátt fyrir að vera enn áhugamaður og það verður vert að fylgjast með framgöngu þessarar efnilegu golfstúlku í framtíðinni.
