Evrópumótaröð kvenna | sunnudagur 13. febrúar 2011 | 12:06

Tseng best kvenkylfinga eftir sigur í Ástralíu


Kylfingurinn Yani Tseng frá Taívan er orðinn efst á heimslista kvenna eftir að hafa unnið fjögurra högga sigur á Australian Ladies Masters mótinu sem lauk í morgun. Tseng lék samtals á 24 höggum undir pari en Nikki Campbell og Stacey Lewis urðu að sætta sig við annað sætið á 20 höggum undir pari.

Þetta er annað mótið í röð sem Tseng vinnur á árinu því hún bar einnig sigur á Australian Open mótinu í síðustu viku en þá varð hún sjö höggum á undan næsta kylfing. Hún hefur því árið með miklum krafti og er nú best kvenkylfinga.

Lokastaðan í mótinu