Evrópumótaröð kvenna | mánudagur 7. febrúar 2011 | 09:41
Frábær byrjun á nýju ári hjá Tseng
Yani Tseng frá Taívan byrjar nýtt keppnistímabil með stæl því hún sigraði á Opna ástralska mótinu er lék samtals á 16 höggum undir pari og varð sjö höggum á undan næsta kylfingi.
Tseng sigraði á tveimur risamótum á síðustu leiktíð í kvennagolfinu og þykir líkleg til afreka í ár. Besti kvenkylfingur heims, Jiyai Shin, varð í öðru sæti ásamt Melissu Reid frá Englandi.
Nokkrir þekktir kvenkylfingar tóku þátt í mótinu og t.d. varð Jennifer Song frá Bandaríkjunum í fimmta sæti.
Lokastaðan í mótinu