Evrópumótaröð kvenna | mánudagur 24. janúar 2011 | 19:40
Hedwall vann í sínu fyrsta atvinnumóti
Hin sænska Caroline Hedwall sigraði á New South Wales Open mótinu á áströlsku kvennamótaröðinni um helgina. Hedwall er líklega efnilegasti kvenkylfingur heims um þessar mundir og vann í sínu fyrsta móti sem atvinnumaður.
Hún lék á 11 höggum undir pari og varð einu höggi betri en hin unga Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi. Ko er aðeins 13 ára gömul og þykir gríðarlegt efni og bjartasta von Nýja-Sjálands í golfinu.
Hedwall tryggði sér keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna með að vinna úrtökumótið í desember síðastliðnum. Hún lék í háskólagolfinu með Oklahoma State skólanum og var liðsfélagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur sem leikur nú með skólanum.