Hleð inn spilara...
Evrópumótaröð kvenna | laugardagur 15. janúar 2011 | 17:10
Þrír heimamenn jafnir í Suður-Afríku
Það er mikil spenna á Joburg Open mótinu á Evrópumótaröðinni. Þrír Suður-afrískir kylfingar eru jafnir í efsta sæti mótsins á 15 höggum undir pari. Þeir Thomas Aiken, Garth Mulroy og Charl Schwartzel deila efsta sætinu.
Schwartzel á titil að verja í mótinu og hefði líklega getað haldið forystu í mótinu ef ekki hefði verið fyrir vandræði á flötunum. Hann lék á 69 höggum í dag eða tveimur höggum undir pari og segir að aðstæður hafi verið erfiðar í dag.
„Þetta var mun erfiðara í dag. Það var mikill vindur og erfitt að reikna með vindátt. Það gerði kylfuval afar erfitt,“ sagði Schwartzel við blaðamenn eftir hringinn í dag.
Jamie Donaldsson frá Wales lék best allra í dag eða á 65 höggum. Hann lyfti sér þar með upp í 8. sæti mótsins á 11 höggum undir pari. Búast má við mikilli spennu á morgun þegar lokahringurinn fer fram en allt að 15 kylfingar eiga raunhæfan möguleika á sigri í mótinu.
Staðan í mótinu
