Evrópumótaröð kvenna | sunnudagur 12. desember 2010 | 15:25
Pace besti og tekjuhæsti kvenkylfingurinn í Evrópu
Lee-Anne Pace braut varð í gær fyrsti kvenkylfingurinn frá Suður-Afríku til að verða efst á tekjulista Evrópumótaraðar kvenna. Hún háði mikla baráttu við Lauru Davies frá Englandi um efsta sætið og hafði betur þrátt fyrir að leik illa á Dubai Ladies Masters mótinu sem lauk í gær.
Pace tók þátt í 25 mótum í ár og safnaði saman 339 þúsund evrum eða um 50 milljónum króna. Hún varð um 20 þúsund evrum á undan Davies og var einnig valinn kylfingur ársins. Árið var því frábært hjá þessum 29 ára kylfingi.
„Ég átti ekki von á því að vinna fimm mót í ár. Ég hef komið sjálfri mér örlítið á óvart en það er alltaf gaman að ná markmiðum sínum þó þau hafi verið örlítið óraunhæf í byrjun tímabilsins,“ sagði Pace sem leikur fyrir sama golfklúbb og sigurvegarinn á Opna breska, Louis Oousthuizen.
Lokastaða efstu kylfinga á tekjulistanum:
1 Lee-Anne Pace (SA) 339,517.77 evrur
2 Laura Davies (ENG) 311,573.48
3 Melissa Reid (ENG) 270,871.59
4 In Kyung Kim (KOR) 193,154.69
5 Iben Tinning (DEN) 163,562.50
6 Virginie Lagoutte-Clement (FRA) 153,526.09
7 Suzann Pettersen (NOR) 149,489.66
8 Florentyna Parker (ENG) 145,240.36
9 Trish Johnson (ENG) 139,924.93
10 Vikki Laing (SCO) 126,733.57
Myndir/golfsupport.nl