Fréttir | mánudagur 10. ágúst 2009 | 10:32
Fyrsti sigur Stupples í fimm ár

Karen Stupples frá Englandi vann sinn þriðja sigur á ferlinum þegar hún varð hlutskörpust á Wales Ladies Championship sem lauk í gær.
Hún lauk keppni á 12 höggum undir pari, einu höggi á undan Amy Yang.
Þetta var fyrsti sigur hennar í fimm ár, eða síðan hún sigraði á Opna breska kvennamótinu árið 2004. Stupples hefur örugglega fagnað vel því að hún hefur ekki átt góðu gengi að fagna í ár og fallið úr leik í niðurskurði í 7 af 14 mótum. Ein af orsökunum á bak við það er að vísu að hún gekkst undir botnlangaaðgerð í vor og var frá æfingum og keppni í nokkrar vikur.
Sigurinn stóð tæpt undir lokin, því að á seinni níu holunum í gær missti hún þriggja högga forskot niður í eitt, en það var nóg til að landa titlinum og rúmum 11 milljónum íslenskra króna í verðlaunafé.
"Sem betur fór náði ég að halda í þetta undir lokin," sagði Stupples í mótslok. "Fyrri níu komu mér vel af stað og mér gekk vel, en eftir það var ég að reyna að halda fengnum hlut í stað þess að sækja áfram. Þetta var afar athyglisvert."
Mynd/LET