Fréttir | miðvikudagur 5. ágúst 2009 | 12:15

Brewerton vill landa heimasigri


Becky Brewerton frá Wales, sem var nýlega valin í Solheim-lið Evrópu, verður í eldlínunni á heimavelli næstu daga þar sem Open Wales Championship hefst á morgun. Hún og fjórar stöllur hennar í Evrópuliðinu fara fyrir sterkum þátttakendahópi, en sigur yrði afar kærkominn fyrir Brewerton, sem var valin af Alison Nicholas, fyrirliða, þrátt fyrir að hún hafi ekki verið meðal efstu kvenna á stigalistum fyrir keppnina.

„Þetta er eitt af þeim mótum sem ég myndi helst vilja sigra á þar sem ég er augljóslega á heimavelli.“

Brewerton getur orðið fyrsta velska konan til að sigra á  þessu móti, en hún komst ansi nálægt því árið 2003 þegar hún varð í öðru sæti.

„Ég hef leikið þennan völl margoft svo ég hlakka mikið til. Þetta er erfiður völlur, eins og links-vellir eru jafnan, og aðstæður eru oft misjafnar og vindurinn tekur yfirleitt í.

„Maður verður, held ég, að nýta sér par-5 holurnar, vegna þess að það er hægt að ná nokkrum fuglum á þeim. Þetta snýst annars mikið um leikskipulag og kænsku. Að vera á réttum stað því að það er oft erfitt að ná góðum höggum þegar er vindasamt. Þetta snýst um að reyna að koma sér hjá vandræðum. Ég er í fínum gír og ég vona að það sé skemmtileg vika framundan.“

Mynd/LET - Brewerton er bjartsýn fyrir mótið