Fréttir | laugardagur 1. ágúst 2009 | 22:42

Matthew heldur sínu striki á Opna breska kvennamótinu


Catriona Matthew frá Skotlandi er enn í efsta sæti Opna breska kvennamótsins sem fer nú fram á Royal Lytham & St. Annes vellinum í Englandi. Hún lék þriðja hringinn á einu höggi undir pari og er nú samtals á fjórum undir fyrir lokahringinn.

Matthew, sem eignaðist sitt annað barn fyrir 11 vikum síðan, gæti með sigri orðið fyrsti Bretinn í fimm ár til að hampa sigri á risamóti, eða síðan Karen Stupples sigraði á þessu móti árið 2004.

„Mér finnst ég eiga nokkuð góða möguleika,“ sagði Matthew. „Ég hitti á sjö eða átta flatir á seinni níu í dag og ef ég geri það á morgun á ég góða möguleika. Ég er augljóslega bara að reyna að slappa af. Það var svolítið erfitt í dag þar sem ég var að reyna að sleppa frá glompum og eiga par-pútt á hverri holu. Það er auðvitað frábært að vera í forystu, en það er mikið ógert á morgun.“

Í öðru sæti er Christina Kim á einu höggi undir pari, en þar á eftir, á sléttu pari, eru þær Jiyai Shin og Ai Miyazato.

Meðal annarra þekktra kylfinga má nefna að Paula Creamer er á 2 yfir, Karrie Webb og Se Ri Pak eru á 4 yfir, Cristie Kerr og Yani Tseng eru á 6 yfir, Michelle Wie er á 7 yfir og Lorena Ochoa er á 8 yfir.

Spennan vex fyrir lokadaginn, en fyrir utan að verið er að berjast um síðasta risatitil ársins hjá konum, verða Solheim-liðin tilkynnt strax eftir verðlaunaafhendingu.

Matthew, sem hefur þrisvar keppt fyrir Evrópu hönd á Solheim, gæti skotist óvænt inn í liðið með sigri á morgun, en það kemur allt í ljós.

Staðan

Mynd/LET