Fréttir | föstudagur 31. júlí 2009 | 23:42
Matthew og Sergas efstar á Opna breska - Ochoa í miklum vandræðum

Þær Catriona Matthew og Giulia Sergas eru efstar og jafnar á toppi Opna breska kvennamótsins eftir tvo hringi. Þetta er fjórða og síðasta risamót kvennagolfsins á árinu og jafnframt síðasta tækifærið til að sanna sig áður en valið verður í lið Evrópu og Bandaríkjanna fyrir Solheim-bikarkeppnina sem hefst 17. ágúst.
Þær Mattew og Gula eru báðar á 3 höggum undir pari eftir hringina tvo, en Sandra Gal, sem var í forystu eftir fyrsta hring átti eftirminnilega slakan dag þar sem hún lék á 80 höggum og féll niður í 25.-31. sæti.
Hún var ekki sú eina sem átti slæman dag, því að Lorena Ochoa, efsta konan á heimslistanum, er tíu höggum frá toppnum eftir að hafa leikið á 77 höggum í dag og Michelle Wie, sem ætlaði að vinna sér sæti á Solheim, lék á 76. Hin franska Gwladis Nocera, sem er efst að stigum fyrir valið á Evrópuliði Solheim átti ótrúlegan dag í gær þar sem hún lék á heilu 91 höggi og 74 högg í dag voru langt í frá það sem hún þurfti til að rétta úr þeim halla.
Nokkru ofar eru sumar af helstu kvenkylfingum heims þannig að enn er mikil spenna í mótinu. Einungisfjórar konur eru undir pari og Royal Lytham & St. Annes völlurinn hefur sýnt það að hann refsar illa ef kylfingar misstíga sig.
StaðanMynd/golfsupport.nl