Fréttir | sunnudagur 26. júlí 2009 | 16:23

Miyazato sigraði á Evian Masters


Ai Miyazato frá Japan fagnaði í dag sigri á Evian Masters eftir að hafa lagt, Svíann Sophie Gustafson í bráðabana.

Evian Masters er jafnan talið með stærstu mótum kvennagolfsins ár hvert þar sem kylfinga alls staðar að úr heiminum mætast í keppni um einn af stæstu verðlaunapottum ársins.

Miyazazto, sem er 24 ára Japani, lagði Gustafson á fyrstu holu í bráðabana þar sem hún fékk fugl á 18. holu. Áður hafði Gustafson þvingað fram bráðabana með því að setja fugl á síðustu holunni.

Báðar léku þær hringina tvo á 274 höggum, eða 14 undir pari, einu betur en Meena Lee frá S-Kóreu og Cristie Kerr frá Bandaríkjunum.

Athygli vakti að Walesverjinn Becky Brewerton, sem var í toppsætinu nær allt mótið, hrapaði niður listann í dag þegar hún lék á 4 höggum yfir pari en hún ætti engu að síður að taka inn eitthvað af stigum fyrir undanval Solheim-bikarsins því að einungis tvær evrópskar konur voru fyrir ofan hana á mótinu.

Þetta var fyrsti sigur Miyazatos utan Japans og fær hún í sína hönd, tæpa hálfa milljón Bandaríkjadala, eða rúmar 60 milljónir íslenskra króna.

Lokastaðan

Mynd/golfsupport.nl