Fréttir | miðvikudagur 22. júlí 2009 | 23:58
Evian Masters: Solheim barátta í brennidepli

Keppnin um sæti í Solheim-cup liðum Evrópu og Bandaríkjanna er nú að ná hámarki og verður svo sannarlega í brennidepli á Evian Masters mótinu sem hefst á morgun. Solheim-cup fer fram dagana 17.-23. ágúst í Illinois-fylki.
Þar reyna bestu kylfingar Evrópu og Bandaríkjanna að vinna sér inn stig, en þetta er næst-síðasta mótið sem það er hægt. Beggja vegna Atlantshafs er búið að velja mót sem telja til stiga og fer stigafjöldi hvers móts eftir vægi þess, þ.e. hve há verðlaun eru í boði á mótinu og hvort um risamót sé að ræða. Evian Masters er einmitt talið sem risamót í bókum Evrópumótaraðarinnar, en mótið er líka kjörið tækifæri til að sýna sig fyrir fyrirliðunum , Beth Daniels og Alison Nicholas. Daniels má velja tvær konur í lið Bandaríkjanna óháð stigafjölda, en Nicholas má velja þrjár.
Tíu stigahæstu kylfingar Bandaríkjanna komast sjálfkrafa í liðið, en hjá Evrópu er bæði farið eftir stigum þar sem fimm eru valdar af stigalistanum, en fjórar efstu af heimslistanum sem hafa ekki enn tryggt sig inn á stigum komast í liðið.
Hjá Bandaríkjunum eru þessar efstar á stigalistanum í augnablikinu: (Nafn/stig)
1 Paula Creamer 744.0
2 Cristie Kerr 665.0
3 Angela Stanford 573.0
4 Nicole Castrale 314.0
5 Brittany Lang 288.0
6 Morgan Pressel 277.0
7 Kristy McPherson 276.0
8 Christina Kim 255.0
9 Brittany Lincicome 250.0
10 Natalie Gulbis 201.0
Hjá Evrópu eru efstu konur á stigalistanum: (Nafn/stig)
1 Gwladys Nocera 200.50
2 Tania Elosegui 138.75
3 Diana Luna 126.80
4 Laura Davies 119.55
5 Suzann Pettersen 116.00
Auk þess komast þessar inn vegna stöðu sinnar á heimslistanum eins og er: (Nafn/staða á heimslista)
1 Helen Alfredsson 10
2 Anna Nordqvist 20
3 Maria Hjorth 34
4 Karen Stupples 45
Mynd: Natalie Gulbis er síðasta kona inn í öruggu sæti í Solheim lið Bandaríkjanna. Hún sigraði á Evian Masters árið 2007 og gæti tryggt sér sæti endanlega með góðri útkomu um helgina.