Fréttir | sunnudagur 19. júlí 2009 | 21:37
Mikið öryggi hjá Brewerton

Becky Brewerton vann firnaöruggan sigur á Opna spænska mótinu á Evrópumótaröð kvenna í dag. Hún leiddi allt mótið og lauk leik á 18 höggum undir pari, sex höggum betur en næstu konur, en í öðru sæti voru fjórir kylfingar.
Þetta var annar sigur Brewertons á ferlinum, en þessi 26 ára Walesverji hefur sett markið á að vinna sér sæti í Solheim-liði Evrópu og ætti þessi sigur að gefa til kynna að ýmislegt búi í henni.
Lokastaðan