Fréttir | sunnudagur 19. júlí 2009 | 07:08

LET: Brewerton með örugga forystu á Spáni - Stefnir á Solheim-sæti


Hin velska Becky Brewerton er stungin af á Opna spænska mótinu á Evrópumótaröð kvenna, en hún er á 16 höggum undir pari fyrir lokahringinn, fimm höggum á undan næstu konum, en Tanya Elosegui og Ana Fernandez de Mesa eru í öðru sæti á 11 undir pari.

Brewerton sem hefur leitt frá fyrsta hring, lék óaðfinnanlega á þriðja hringnum í gær, fékk sex fugla og engan skolla, en hún átti m.a. tvö glæsileg pútt af um 20m færi hvort.

Hún vonast að sjálfsögðu til að halda sínu striki og sigra, ekki síst til að styrkja stöðu hennar fyrir valið í Solheim-lið Evrópu, en Solheim-bikarkeppnin milli Evrópu og Bandaríkjanna fer fram í Illinios-fylki í Bandaríkjunum dagana 17.-23. ágúst nk.

Staðan

Mynd/LET - Brewerton var skiljanlega í góðu skapi á Spáni í gær.