Fréttir | fimmtudagur 19. janúar 2012 | 15:21

Colsaerts setti vallarmet á Fancourt vellinum


Belginn Nicolas Colsaerts hóf keppni í Volvo Golf Champions mótinu á Evrópumótaröðinni með glæsibrag en hann lék fyrsta hringinn í mótinu á 64 höggum eða níu höggum undir pari. Hann setti í kjölfarið vallarmet á Fancourt vellinum í Suður-Afríku og hefur náð góðri forystu í mótinu.

Colsaerts var á tveimur höggum undir pari eftir fyrri níu holurnar en datt heldur betur í gang á seinni níu holunum sem hann lék á sjö höggum undir pari. Colsaerts hefur fjögurra högga forystu á þá Tom Lewis, Thomas Aiken og Branden Grace sem sigraði um síðustu helgi á
mótaröðinni.

Þetta er líklega besti hringurinn minn á ferlinum. Þetta var mikil prófraun. Ég held að lengsta púttið sem ég setti niður í dag hafi verið af 3,5 metra færi. Ég lék frábærlega,“ sagði þessi 29 ára Belgi.

Í mótinu leika aðeins þeir kylfingar sem stóðu uppi sem sigurvegarar á mótaröðinni á síðustu leiktíð eða hafa unnið tíu mót eða fleiri á mótaröðinni. Kylfingar líkt og Miguel Angel Jimenez, Colin Montgomerie, Ernie Els, Jose Maria Olazabal og fleiri kempur eru með í mótinu.

Staðan eftir fyrsta hring