Hleð inn spilara...


Fréttir | sunnudagur 8. janúar 2012 | 19:27

GolfTV: Samantekt frá lokahringnum í S-Afríku


Heimamaðurinn Louis Oosthuizen hafði betur gegn löndum sínum þeim Tjaar van der Walt og Retief Goosen á Africa Open mótinu sem lauk í dag á Evrópumótaröðinni í Suður-Afríku.

Oosthuizen varði þar með titil sinn í mótinu. „Þetta var mikil barátta. Ég man þegar ég sá Tjaart fyrst spila sem áhugamaður og það er frábært að sjá hann leika svona vel því hann hefur mikla hæfileika. Þegar hann er kominn í baráttuna þá losnar maður ekki við hann. Tjaart gerir fá mistök, hann er of stöðugur kylfingur til þess,“ sagði Oosthuizen að móti loknu.

Þetta er fjórði sigurinn hjá Oosthuizen á Evrópumótaröðinni en hann hefur nú unnið mót þrjú ár í röð á mótaröðinni. Hann tyllir ennfremur í efsta sæti tekjulista mótaraðarinnar.


Louis Oosthuizen byrjar árið 2012 afar vel.