Fréttir | sunnudagur 8. janúar 2012 | 15:10
Oosthuizen varði titilinn á Africa Open
Louis Oosthuizen byrjar árið 2012 með stæl því hann varði titil sinn á Africa Open mótinu sem lauk í dag á Evrópumótaröðinni. Mótið fór fram á East London golfsvæðinu í Suður-Afríku.
Oosthuizen, sem er frá Suður-Afríku og vann Opna breska meistaramótið árið 2010, lék á 67 höggum í dag eða sex höggum undir pari og lék hann alls á 27 höggum undir pari í mótinu. Hann varð tveimur höggum á undan landa sínum Tjaart Van der Walt. Retief Goosen varð svo í þriðja sæti á 24 höggum undir pari.
Heimamenn röðuðu sér í efstu fjögur sætin í mótinu en í fimmta sæti varð svo Alisthair Forsyth frá Skotlandi. Oosthuizen fær um 25 milljónir króna í sinn hlut fyrir sigurinn.
Lokastaðan í mótinu