Fréttir | fimmtudagur 3. nóvember 2011 | 22:29
Westwood nálægt því að vera sá tekjuhæsti
Það er fátt sem kemur í veg fyrir það að Englendingurinn Lee Westwood verði tekjuhæsti kylfingur allra tíma á Evrópumótaröðinni. Skotinn Colin Montgomerie á þann heiður í dag en hann hefur unnið sér inn alls 22,4 milljónum punda á Evrópumótaröðinni. Westwood er aðeins 200 þúsund pundum á eftir Monty og gæti orðið sjá tekjuhæsti eftir HSBC Champions mótið í Kína.
Lengi vel var keppnin á milli Monty og Ernie Els en Westwood hefur leikið vel undanfarin fjögur ár og unnið sér inn háar fjárhæðir. Einnig hjálpar það Westwood að verðlaunaupphæðir hafa hækkað á undanförnum áratug.
Westwood hefur að miklu að keppa í mótinu því hann þarf að verja stöðu sína á heimslistanum enda er Rory McIlroy á nokkurri siglingu um þessar mundir. Westwood er í öðru sæti listans en skammt á eftir kemur McIlroy.