Hleð inn spilara...
Fréttir | mánudagur 31. október 2011 | 18:31
GolfTV: Ótrúleg áhætta Jimenez gekk næstum eftir
Það var mikil spenna á lokaholunum í Andalucia Masters mótinu sem lauk á Evrópumótaröðinni í gær. Spánverjarnir Sergio Garcia og Miguel Angel Jimenez börðust um sigurinn á hinum fræga Valderama golfvelli á Spáni.
Jimenez gerði svo sannarlega heiðarlega atlögu að sigrinum. Hann tók mikla áhættu á 17. holu sem er krefjandi par-5 hola og sló öðru höggi sínu úr 225 metra fjarlægð yfir vatn og inn á flöt. Frábært högg sem var vel að því komið að vera valið högg dagsins. Jimenez missti naumlega af erninum en fékk auðveldan fugl.
Garcia lék lokahringinn á pari og stóð af sér stórsókn Jimenez á lokaholunum á hinum erfiða Valderama velli sem er talinn vera einn sá erfiðasti sem leikið er á, á Evrópumótaröðinni.
