Fréttir | sunnudagur 30. október 2011 | 16:47

Garcia sigraði í Andalúsíu - Annar sigurinn í röð


Ferilinn hjá Spánverjanum Sergio Garcia er heldur betur kominn á flug eftir að hann fór með sigur af hólmi í Andalusía Masters mótinu sem lauk nú síðdegis á Evrópumótaröðinni. Garcia hefur því unnið tvö mót á Spáni á Evrópumótaröðinni í röð undanfarnar tvær helgar og er greinilega að finna sitt fyrra form á golfvellinum.

Garcia nægði að leika lokahringinn í mótinu á 71 höggi eða á pari og lauk leik á sex höggum undir pari í mótinu. Hann varð einu höggi á undan landa sínum Miguel Angel Jimenez sem setti mikla pressu á Garcia undir lok hringsins með fuglum á 16. og 17. holu. Garica var hins vegar einbeittur á lokaholunum og tryggði sér sinn fimmta sigur á Evrópumótaröðinni á spænskri grundu.

Þetta er afar sérstakur sigur fyrir mig. Mér hefur gengið vel á þessum velli í gegnum tíðina en hef ekki fundið sigurinn fyrr en núna,“ sagði Garcia kátur eftir að sigurinn var í hús. Þetta hafa verið frábærar tvær vikur. Ég var kannski ekki eins góður í dag og ég hef verið að undanförnu en ég náði að hanga á sigrinum.“

Með sigrinum tryggir Garcia sér sæti í HSBC Champions mótinu sem fram fer um næstu helgi á Heimsmótaröðinni. Hann flýgur væntanlega inn á topp-20 á heimslistanum og er einnig í efsta sæti í stigakeppninni fyrir sæti í Ryder-bikarnum. Ljóst er hins vegar að Sergio Garcia er mættur aftur og það verður gaman að fylgjast með honum í lokamótum ársins á Evrópumótaröðinni.

Lokastaðan í mótinu