Fréttir | fimmtudagur 27. október 2011 | 16:35
Ramsey efstur í Andalúsíu - Garcia í toppbaráttunni
Skotinn Richie Ramsey er efstur eftir fyrsta keppnis dag á Opna Andalúsíu mótinu sem fram fer á Spáni á Evrópumótaröðinni. Hann lék fyrsta hringinn á 65 höggum eða sex höggum undir pari og er tveimur höggum á undan Ross Fisher.
Fáir kylfingar náðu að leika undir pari á fyrsta keppnisdegi á hinum erfiða Valderama velli sem leikið var á í Ryder-bikarnum árið 1997. Heimamaðurinn Sergio Garcia fékk mikla athygli í dag og lék hann á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Óstöðugleiki gerði vart við sig í leik Garcia í dag en hann var kominn fjórum höggum undir par eftir ellefu holur en lenti í vandræðum á næstu holum og tapaði fjórum höggum á þremur holum.
Miguel Angel Jimenez og Martin Kaymer léku á pari á fyrsta hringnum og eru ofarlega á töflunni. Norður-Írinn Graeme McDowell á titil að verja í mótinu og lék hann hringinn í dag á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari.
Staðan í mótinu
Mynd/golfsupport.nl: Richie Ramsey lék vel í dag.