Fréttir | sunnudagur 23. október 2011 | 16:13
Garcia magnaður á heimavelli - Vann með ellefu höggum
Sergio Garcia batt enda á þriggja ára sigurleysi með stæl í dag þegar hann bar sigur úr býtum á Castello Masters mótinu sem lauk í dag á Evrópumótaröðinni. Þessi 31 árs Spánverji var magnaður í mótinu og lék lokahringinn á 63 höggum eða átta höggum undir pari. Hann lék samtals á 27 höggum undir pari og varð heilum ellefu höggum á undan næsta kylfingi.
Sigurinn er sá þriðji stærsti í sögu Evrópumótaraðarinnar en sá stærsti er þegar Tiger Woods sigraði með 15 höggum í Opna bandaríska meistaramótinu árið 2000. Gonzalo Fernandez-Castaño varð annar í mótinu.
„Þetta var fyrir Seve,“ sagði Garica eftir að sigurinn var í hús og tileinkaði honum landa sínum Seve Ballesteros. „Mér leið vel vikuna fyrir mótið og ég hef bætt mig eftir því sem liðið hefur á árið.“
Garcia komst best í annað sætið á heimslistanum eftir sigur í HSBC Champions mótinu árið 2008 en undanfarin þrjú tímabil hafa verið vonbrigði. Batamerki hafa verið á leik hans að undanförnu og sýndi hann snilli sína um helgina.
Lokastaðan í mótinu