Hleð inn spilara...
Fréttir | fimmtudagur 20. október 2011 | 17:27
McGowan efstur á Spáni - Garcia lék vel
Englendingurinn Ross McGowan er í góðri stöðu eftir fyrsta hringinn í Castello Masters mótinu sem fram fer á Spáni á Evrópumótaröðinni. Hann lék fyrsta hringinn á 64 höggum eða sjö höggum undir pari og hefur tveggja högga forystu á Fabrizio Zanotti og Richard McEvoy.
McGowan var nálægt því að tryggja sér sæti í liði Evrópu í Ryder-bikarnum á síðasta ári en meiðsli í úlnlið komu í veg fyrir það. Hann berst nú fyrir því að halda keppnisrétti sínum á Evrópumótaröðinni en hann er í 164. sæti á tekjulista mótaraðarinnar þegar skammt er eftir af tímabilinu.
„Það er gott að vera spila aftur vel og komast í baráttuna. Ég er ekki að hugsa um stöðu mína á listanum heldur að reyna að taka bara eitt högg í einu og vona að það fleyti mér hátt í mótinu,“ sagði McGowan að loknum fyrsta hring.
Spánverjinn Sergio Garcia kann vel við sig á heimaslóðum og er í 4. sæti eftir fyrsta hring. Hann lék á 67 höggum eða fjórum höggum undir pari og gæti blandað sér í baráttuna um sigurinn.
Staðan í mótinu
