Hleð inn spilara...
Fréttir | sunnudagur 16. október 2011 | 21:33
Lewis í skýjunum með sigurinn
Englendingurinn Tom Lewis er heldur betur stjarna dagsins eftir sigur sinn í Portugal Masters mótinu á Evrópumótaröðinni. Þessi tvítugi kylfingur sló við Tiger Woods þegar hann sigraði í sínu þriðja móti sem atvinnumaður en Woods vann í sínu fimmta móti. Fyrir sigurinn fær Lewis um 68 milljónir króna.
„Ég er ekki einu sinni búinn að hugsa um peninginn - ég hugsaði bara um að vinna mótið,“ sagði Lewis í viðtali eftir mótið. „Ég átti alls ekki von á þessu. Mér kveð fyrir því að þurfa að fara í úrtökumótið í lok ársins en nú slepp ég við það.“
Nánar má heyra í þessum stórefnilega kylfingi í viðtalinu hér að ofan.
