Fréttir | föstudagur 14. október 2011 | 18:39
Donald svarar Simpson - Verður með í lokamótinu
Englendingurinn Luke Donald tilkynnti á Twitter síðu sinni í dag að hann verði með í Disney mótinu á PGA-mótaröðinni um næstu helgi sem er lokamótið á PGA-mótaröðinni í ár. Donald er sem stendur í efsta sæti á tekjulistanum á PGA-mótaröðinni en Webb Simpson mun að öllum líkindum ná efsta sætinu eftir McGladrey Classic mótið þar sem hann er meðal efstu kylfinga.
Donald hafði ekki áformað að vera með í mótinu en eftir að Simpson ákvað að vera með um helgina ákvað Donald að reyna að verja stöðu sína. „Þetta var í raun aldrei spurning. Ég á möguleika á skrá nafn mitt í sögunni,“ skrifaði Donald á Twitter síðu sinni.
Donald er efstur á tekjulistanum á bæði PGA- og Evrópumótamótaröðinni og gæti orðið fyrsti kylfingurinn í sögunni til að verða efstur á þessum tveimur mótaröðum á einu og sama keppnistímabilinu. Simpson mun vafalaust reyna sitt besta til að ná því að verða efstur í Bandaríkjunum enda fengi hann fimm ára keppnisrétt á PGA-mótaröðinni fyrir vikið. Langt er síðan úrslit um efsta sætið á tekjulistanum réðust í lokamótinu en það gerðist síðast árið 2003.
Umboðsmaður Donald, Jon Wagner, segir að umbjóðandi sinn leggi mikla áherslu á að ná efsta sætinu en það þykir gefa honum góðan möguleika á að verða valinn kylfingur ársins á mótaröðinni. Óljóst er hvort að Simpson verði með í lokamótinu.