Hleð inn spilara...
Fréttir | fimmtudagur 13. október 2011 | 21:55
Kingston efstur í Portúgal - Björn höggi á eftir
James Kingston frá Suður-Afríku er í efsta sæti eftir fyrsta hring í Portugal Masters mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni. Kingston lék fyrsta hringinn á 64 höggum eða átta höggum undir pari en nokkur stór nöfn eru skammt undan.
Daninn Thomas Björn var einn þeirra sem lék sérlega vel í dag og kom í hús á 65 höggum eða sjö höggum undir pari. Björn deilir öðru sætinu ásamt fjórum öðrum kylfingum. Margir kylfingar voru að leika vel á fyrsta keppnisdegi og léku þeir Colin Montgomerie, Martin Kaymer, Padraig Harrington og Francesco Molinari allir á fimm höggum undir pari.
Sjá má samantekt frá fyrsta hring í myndbandinu hér að ofan.
Staðan í mótinu

James Kingston lék á 64 höggum í dag.