Fréttir | fimmtudagur 13. október 2011 | 09:01
Kaymer varð pressunni að bráð
Martin Kaymer viðurkennir að hann hafi átt erfitt uppdráttar eftir að hafa fyrr í ár orðið besti kylfingur heims. Kaymer náði efsta sætinu á heimslistanum í febrúar eftir gott gengi í fyrstu mótum ársins en hefur síðan verið í vandræðum. Hann reyndi að breyta sveiflu sinni fyrir Masters mótið til að eiga meiri möguleika á sigri og segir að pressan hafi tekið sinn toll.
„Ég reyndi að gera nokkrar breytingar á sveiflunni til að ég gæti spilaði betur í Masters mótinu sem gengu ekki eftir. Það er örugglega auðveldara að vera besti kylfingur heims ef þú ert frá Bandaríkjunum eða Englandi frekar en Þýskalandi. Bernhard Langer er sá eini sem hefur líka náð þessum áfanga og eftir að ég varð líka sá besti þá sló golf í gegn á ný. Ég fékk margar beiðnir um að gera hitt og þetta, mæta á marga viðburði - suma sem ég vildi mæta í, aðra ekki. Þetta varð frekar yfirþyrmandi,“ segir Kaymer en er þó reynslunni ríkari.
„Eftir nokkra mánuði þá áttar maður sig á því hvers vegna ég komst í efsta sætið. Það var vegna þess sem ég gerði á æfingasvæðinu en ekki í ljósmyndastúdíóinu. Ef mér tekst að ná þessum áfanga aftur þá veit ég hvernig á að höndla það að vera sá besti.“
Þessi 26 ára Þjóðverji varð efstur á tekjulistanum á Evrópumótaröðinni á síðustu leiktíð en er í fimmta sæti eins og sakir standa. Hann er stærsta nafnið í Portugal Masters mótinu sem hefst í dag á Evrópumótaröðinni og gæti náð að mjaka sér upp í þriðja sæti með sigri. Hann er um tveimur milljónum evra á eftir Luke Donald og gerir sér grein fyrir að hann muni líklega ekki ná að verja tekjutitilinn frá því á síðasta ári.
„Það verður líklega ekki hægt að ná Luke Donald úr þessu en það er alltaf hægt að ná öðru eða þriðja sætinu og að því stefni ég.“