Hleð inn spilara...


Evrópumótaröð karla | fimmtudagur 21. apríl 2011 | 15:04

Han leiðir með einu í Kína


Kylfingurinn Chang-won Han frá Suður-Kóreu er efstur eftir fyrsta hring á Volvo China Open mótinu sem hófst í dag í Han lék á 64 höggum eða átta höggum undir pari og hefur eins höggs forystu á þá Gareth Maybin, James Morrison, Bradley Dredge og Sören Kjeldsen.

Mikil þoka varð til þess að keppni var frestað um klukkustund og því eiga 24 kylfingar enn eftir að ljúka leik á fyrsta hring. Spánverjinn Sergio Garcia byrjar vel í mótinu en hann lék á 66 höggum eða sex höggum undir pari.

Þrefaldi risameistarinn Padraig Harrington lék á 71 höggi á fyrsta hringnum eða á einu höggi undir pari. Hann er um miðjan hóp eftir fyrsta hring en þarf að leika betur til að blanda sér í baráttuna um sigurinn.

Staðan í mótinu