leirutilboð
Bookmark and Share

Fréttir | fimmtudagur 30. júlí 2009 | 12:18

Birgir Leifur með fínan endasprett


Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék á 74 höggum á fyrsta hringum á Moravia Silesia Open mótinu sem fram fer í Tékklandi. Hann lék samtals á tveimur höggum yfir pari en var mest kominn fjögur högg yfir par. Hann fékk hins vegar tvo fugla á þremur síðustu holunum í dag og náði að klóra sig upp listann í mótinu.

Hann er eins og staðan er núna í 82. sæti í mótinu en margir kylfingar eiga eftir að ljúka leika í dag og því getur staðan breyst mikið. Birgir hóf leik á 10. teig í morgun og byrjaði ágætlega. Hann fékk par á fyrstu fimm holurnar áður en hann fékk tvöfaldan skolla á 15. holuna sem er par-3 hola. Hann náði þó fugli á 18. holunni og var því á einu höggi yfir pari eftir fyrri níu. Hann byrjaði svo ekki nægilega vel á seinni níu holunum áður en hann lauk hringnum með tveimur góðum og mikilvægum fuglum.

Birgir verður því að eiga góðan hring á morgun til að eiga möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn.

Staðan


Mynd/golfsupport.nl: Birgir Leifur Hafþórsson lék á 74 höggum í Tékklandi í dag.