Jamie Donaldson sigraði á Opna írska
Enginn vindur, mjúkur völlur og nokkrir bestu kylfingar heims var góð uppskrift fyrir lokadaginn á Opna írska mótinu sem lauk í dag en Jamie Donaldson sigraði í fyrsta sinn á evrópsku mótaröðinni. Þessi 36 ára Walesverji leiddi mótið eftir þrjá hringi á 12 höggum undir pari. Hann gerði sér svo lítið fyrir og lék lokahringinn á Royal Portrush vellinum í dag á 66 höggum eða sex undir pari og endaði 18 undir í heildina. Hann vann mótið með fjögurra högga mun en í öðru sæti komu þeir Anthony Wall, Fabrizio Zanotti og Rafa Cabrera-Bello á samtals 14 höggum undir pari.
Slæmt veður setti svip sinn á mótið en fyrstu þrír hringirnir voru spilaðir í miklum vindi og rigningu. Það kom þó ekki niður á áhuga heimamanna en á hverjum einasta degi fylgdu yfir 25 þúsund manns kylfingum eftir í rigningunni á þessum fallega golfvelli.
Rory McIlroy var með í mótinu en honum tókst ekki að blanda sér í toppbaráttunna af ráði þrátt fyrir að hafa leikið nokkuð gott golf alla helgina. Hann endaði jafn í 10.sæti á 11 höggum undir pari.

- GolfTV | 24. maí 2013 19:50Golf TV: Axel lék vel á Akranesi - Ekki eins heitt og í Ameríku
- GolfTV | 24. maí 2013 09:31GolfTV – Veikleiki íslenskra kylfinga er stutta spilið
- GolfTV | 23. maí 2013 19:04GolfTV: Íslandsmeistarinn skiptir um skóla í haust
- GolfTV | 23. maí 2013 13:02GolfTV – Eimskip ætlar að leggja meira púður í mótaröðina
- GolfTV | 23. maí 2013 10:12GolfTV: Einstök upphitun hjá Jimenez
- GolfTV | 22. maí 2013 16:49GolfTV - Axel: Hef verið að spila mun betur í ár
