Rory McIlroy byrjar vel í PGA Meistaramótinu.
Fréttir | 09. ágú. 2012 19:58

Rory á fimm undir - Tiger þremur undir pari

Rory McIlroy byrjar vel á PGA Meistaramótinu sem fram fer á Kiawah vellinum í Suður-Karólínu. Mótið hófst í dag. McIlroy lék fyrsta hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla og tapaði ekki höggi í dag. Sannkölluð draumabyrjun fyrir Norður-Írann sem ætlar sér stóra hluti í ár.

Tiger Woods byrjar einnig ágætlega en hann lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Skorkortið var litríkt hjá Woods í dag en hann fékk sex fugla og þrjá skolla. Svíinn Carl Petterson er efstur eins og staðan er núna en hann lék á 66 höggum í dag eða sex höggum undir pari.

Keegan Bradley byrjar titilvörnina vel og lék hann á 68 höggum. John Daly er einnig óvænt í toppbaráttunni en hann lék einnig á 68 höggum. Fyrsta hring lýkur í kvöld.

Staðan í mótinu

Til baka

Nýjustu fréttir